Munið þið hvað var gaman í fyrra? Nú auglýsum við eftir þátttakendum frá Sóta í reiðina. Því fleiri, því betra. Við stefnum á að verða langflottust! Hægt að skrá sig hér eða hjá Jörundi. Tilkynning frá LH: Reiðin verður 31.mars og farið verður frá Tanngarði (sama stað og í fyrra) kl 13:00, farinn verður hringur í miðbæ Reykjavíkur, mæting milli 12:00 og 12:30. 2 af ykkar félögum ríða með fána félagsins og í félagasbúningi aðrir mega vera klæddir eins og þeir vilja Dagskrá Hestadaga Myndir frá í fyrra
0 Comments
Síðustu uppákomur, annars vegar Sóta bröns á vegum æskulýðsnefndar og hins vegar Góugleði á vegum ferða/skemmtinefndar tókust með eindæmum vel og vonandi hafa félagar skemmt sér á báðum vígstöðvum. Guðmundur R.ljósmyndari var með myndavélina á lofti og sjá má afraksturinn á myndasíðunni.
![]() Nokkrir Sóta félagar tóku sig til á laugardaginn og tóku þátt í Landsbankamóti Sörla og stóðu sig vel. Enginn þó betur en Alexandra Ýr Kolbeins sem gerði sér lítið fyrir og vann ungmennaflokkinn á Lyftingu sinni! Ungmennaflokkurinn hefur verið frekar fámennur hjá okkur í Sóta svo þetta sýndi og sannaði að Alexandra er í fremstu röð. Patrekur náði þriðja sætinu í barnaflokki á Perlu sem er einnig frábær árangur á hans fyrsta móti utan Sóta. Innilega til hamingju allir keppendur. ![]() Nú er dagskrá Góugleðinnar farin að skýrast og eins og í fyrra virðumst við ná að fylla félagshúsið. Þeir sem eiga eftir að skrá sig, verða að skrá sig í síðasta lagi á morgunn. Verð: Íkr. 4.000.- per mann en leyfilegt er að borga í dollurum. Matseðill: Innbakað sveppafyllt lambalæri með timíankrydduðu ofnbökuðu rótargrænmeti, brokkolísalati og sveppasósu ala Bragi spes. Í boði verður takmarkað magn af alkahóli svo nauðsynlegt er að fólk hafi með sér örlítið af göróttum drykkjum sem valda vandræðum og veikindum (daginn eftir). Klæðnaður verður að vera snyrtilegur annars verður Halli með skotapils til að lána fólki. ![]() Fimm efstu í karlaflokki í tölti. Jóhann Þór Kolbeins lengst t.v. Annað vetrarmót Sóta heppnaðist vel og veðrið slapp fyrir horn ;) en hér meðfylgjandi eru úrslit og stigasöfnun. Þökkum öllum sem tóku þátt og þeim sem að mótinu komu. Vonumst til að sjá sem flesta á þriðja og síðasta mótinu en einhver breyting verður á tímasetningu þess þar sem það fór óvart inn í páskahelgina en það verður auglýst síðar. Bestu kveðjur Mótanefnd Úrslit má lesa hér (ath komin ný skoðanakönnun) Dagana 7.- 15. júlí í sumar verður haldið YOUTH CUP í Verden í Þýskalandi. Sjá nánar á heimasíðu mótsins á www.feifyouthcup2012.de Ísland sendir 8 fulltrúa á mótið og er hér með óskað eftir að æskulýðsfulltrúar hestamannafélaganna komi meðfylgjandi auglýsingu og þessum upplýsingum áfram til áhugasamra unglinga á aldrinum 14-17 ára. ![]() Jörundur vann karlaflokkinn á Presti á síðasta móti. Annað vetrarmót Sóta verður haldið næsta laugardag 10. mars á velli félagsins kl.12:00 - ef veður og vallaraðstæður leyfa- Keppnisgreinar: Barnaflokkur, tölt og þrígangur Keppnisflokkar: Barna, unglinga, ungmenna, kvenna og karla Barnaflokkur: Ríða skal tvo hringi og sýna tölt og/eða brokk. ![]() Æskulýðsnefnd Sóta ætlar að endurtaka bingó-brönsinn frá í fyrra sem tókst svo vel. Að þessu sinni verður ekkert bingó en skemmtun, happadrætti, skiptimarkaður og kaffihúsastemning. Stund: Sunnudagur 11.mars kl. 11:00—12:30 Staður: Salurinn í Álftanesskóla Dagskrá: Spurningakeppni milli barna og fullorðinna, skiptimarkaður, happadrætti Bröns: Egg og beikon að hætti Halla, ýmisskonar brauðmeti, álegg, salöt, kaffi, heilsusafi ofl ofl. |
SótiVið Breiðumýri Eldri fréttir
December 2024
|