Hestamannafélagið Sóti    
  • Frettir
  • Felagid
    • Stjorn og nefndir
    • Lög félagsins
  • Reidholl
  • Reidleidir a Alftanesi
  • Frettir
  • Felagid
    • Stjorn og nefndir
    • Lög félagsins
  • Reidholl
  • Reidleidir a Alftanesi



Sótafélagar duglegir á reiðnámskeiðum

2/23/2021

0 Comments

 
Picture
Það má með sanni segja að reiðhöllin hafi sett sitt mark á félagsstarfið í vetur en nánast allir eru skráðir á einhvers konar reiðnámskeið.  17 knapar eru á knapamerkjanámskeiðum, 8 á reiðnámskeiði hjá Trausta Þór og 16 hjá Atla Guðmunds.  Það er mikill fjöldi í litlu félagi!  Ljóst er að reiðhöllin hefur gjörbreytt kennslumálum hja Sóta og mun án efa gera okkur öll að betri reiðmönnum.  Áfram Sóti!  
Sjá frétt á síðunni hjá Trausta:  https://www.trausti.org/
0 Comments

Góð þátttaka í konudagsreið

2/23/2021

0 Comments

 
Picture
Það voru alls 14 konur á öllum aldri sem tóku þátt í konudagsreið ferða og skemmtinefndar á konudaginn 21 febrúar eða næstum allar konur í hverfinu!  Þrátt fyrir nokkur óhöpp þá vonum við að konur hafi skemmt sér almennt vel en formaður vor tók t.d. á móti okkur á leiðinni með söng, karlpeningurinn í nefndinni bauð okkur velkomnar og stóð fyrir glæsilegum veitingum og síðast en ekki síst kenndi Soffía okkur línudans í reiðhöllinni!  Takk allir fyrir skemmtilegan dag - myndir á FB grúbbu Sóta. (mynd hér:  Kristján Kristjánsson) 
0 Comments

Dagskrá og ráslistar

2/19/2021

0 Comments

 
Picture
​Dagskrá og ráslistar fyrir Vetrarleika 1
Keppni byrjar kl; 13:00 og fer fram í reiðhöll Sóta.
Keppt er í tölti T7.
Einungis er riðin forkeppni og verðlauna afhending fyrir hvern flokk fyrir sig fer fram að lokinni keppni í hverjum flokki.
 
Dagskrá:
Pollaflokkur
Unglingaflokkur
Karlaflokkur
Kvennaflokkur
 
Ráslistar:

Read More
0 Comments

Konudagsreið

2/19/2021

0 Comments

 
Picture
Sunnudaginn n.k. 21. febrúar, þ.e.a.s á konudaginn býður ferða- og skemmtinefnd uppá konudagsreið fyrir allar konur í Sóta. Riðið verður rólega, stuttan hring þar sem markmiðið er að njóta fremur en að þjóta.  Svo er aldrei að vita nema karlpeningurinn verði með óvæntar uppákomur!   Við viljum sérstaklega hvetja nýjar Sóta konur til að mæta.

Mæting er kl. 14:00 við nýju reiðhöllina  okkar.  Gaman ef knapar eða hross gætu skartað einhverju rauðu með svörtu (Sóta litirnir) - engin skylda! 
​
Karlar eru hvattir til að mæta líka – í klappliðið - eða fara saman í karlareið. 
Sjáumst hress
Ferða-og skemmtinefnd
0 Comments

Vetrarleikar 1 - 20 feb

2/19/2021

0 Comments

 
Picture
Vetrarleikar 1 - Tölt T7 fer fram í reiðhöll Sóta n.k. laugardag og hefst kl 13:00.
Völlurinn verður afmarkaður á morgun þannig að knapar geta farið og tekið æfingu fyrir mótið. Einnig verður brautin þjöppuð og undirbúin eins vel og hægt er.  
Ráslista má sjá á LH Kappa!  
Bestu kveðjur frá mótanefnd ​
0 Comments

Reiðnámskeið með Atla Guðmunds

2/16/2021

1 Comment

 
Picture
​Vegna mikils áhuga á reiðnámskeiðum býður fræðslunefnd uppá annað námskeið – opið fyrir alla skuldlausa Sóta félaga

Reiðkennari:  Atli Guðmundsson.  Tímarnir eru sniðnir að þörfum hvers og eins og eru fyrir alla knapa, allt frá byrjendum uppí keppnisfólk.  Hver tími er 30 mín einkakennsla.  Kennt verður í Sóta höllinni á fimmtudögum frá ca kl. 15:30 – 18:00  (fer eftir hver margir skrá sig og hvaða tími hentar) í 6 skipti.  Verð fyrir 6 skipti er 30.000.- 

Stefnt er á að fyrsti tíminn verði  fimmtudaginn 25 febrúar 
​
Hægt er að skrá sig á viðburðinn „Reiðnámskeið með Atla Guðmunds“ eða hafa samband við einhvern í fræðslunefndinni.  
1 Comment

Vetrarleikar 1 - Tölt T7

2/15/2021

0 Comments

 
Picture
Fyrstu vetrarleikar Sóta fara fram laugardaginn 20. febrúar n.k. og hefst keppni kl 13:00.
Stefnt er að því að halda mótið í reiðhöll Sóta ef aðstæður leyfa.
Búið er að opna fyrir skráningar í Sportfeng og er síðasti skráningardagur miðvikudagurinn 17. febrúar.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:


Read More
0 Comments

Fyrstu vetrarleikarnir verða 20 febrúar

2/10/2021

0 Comments

 
​Tilkynning frá mótanefnd Sóta!
Vetrarleikar 1 sem áttu að vera þann 13. febrúar n.k. samkv. dagskrá hafa verið færðir til 20. febrúar vegna reiðnámskeiðs Trausta Þórs.
Nánari dagskrá fyrir Vetrarleika 1 auglýst síðar.
0 Comments

Meistaradeildin T2 í Sótaheimilinu

2/10/2021

0 Comments

 
Picture
Á fimmtudagskvöldið (11/2) ætlum við að koma saman og horfa á keppni í meistaradeild hestaíþrótta! Við munum hittast í félagsheimilinu okkar, keppnin byrjar kl 20:05 og keppt verður í slaktaumatölti. Engar veitingar verða á vegum félagsins en þeir sem vilja mega koma með nesti með sér. Hittumst hress og í stuði á fimmtudag!
​Kveðja frá Ferða og skemmtinefnd
​
p.s. MUNA; að vera með grímu - hámark 20 manns
0 Comments

Dagskrá mótanefndar 2021

2/5/2021

0 Comments

 
Picture
​Mótanefnd Sóta fundaði laugardaginn 30. janúar s.l. og setti saman dagskrá fyrir veturinn.
Dagskrá mótanefndar veturinn 2021:
13. febrúar - Vetrarleikar 1 – Tölt T7
6. mars – Vetrarleikar 2 – Smali
3. apríl – Vetrarleikar 3 – Þrígangur
24. apríl – Firmakeppni
1. maí – Íþróttamót Sóta
15. maí – Gæðingakeppni Sóta
Vetrarleikarnir ganga út á að safna stigum úr öllum þrem mótunum.
Veitt verða stig fyrir 1-5 sæti
Í lok Vetrarleika 3 verður stigahæsti knapi úr hverjum flokki verðlaunaður.
Öll mót verða auglýst sérstaklega þegar nær dregur.
0 Comments
<<Previous
    Picture

    Sóti

    Við Breiðumýri
    225 Álftanes
    Sími formanns/ Sigurjón
    s: 856-5570
    [email protected]
    www.soti.is

    Senda inn efni
    Gerast félagi í sóta
    Facebooksíða Sóta
    Picture
    Picture

    RSS Feed

    Eldri fréttir

    December 2024
    November 2024
    July 2024
    June 2024
    May 2024
    April 2024
    March 2024
    February 2024
    January 2024
    December 2023
    November 2023
    October 2023
    September 2023
    August 2023
    May 2023
    April 2023
    March 2023
    February 2023
    January 2023
    December 2022
    July 2022
    June 2022
    May 2022
    April 2022
    March 2022
    February 2022
    January 2022
    December 2021
    November 2021
    October 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    October 2020
    September 2020
    August 2020
    July 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2016
    July 2016
    June 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    October 2014
    September 2014
    July 2014
    June 2014
    May 2014
    April 2014
    March 2014
    February 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    September 2013
    August 2013
    May 2013
    April 2013
    March 2013
    February 2013
    January 2013
    December 2012
    November 2012
    October 2012
    August 2012
    July 2012
    June 2012
    May 2012
    April 2012
    March 2012
    February 2012
    January 2012
    December 2011

Powered by Create your own unique website with customizable templates.