Dagana 7.- 15. júlí í sumar verður haldið YOUTH CUP í Verden í Þýskalandi. Sjá nánar á heimasíðu mótsins á www.feifyouthcup2012.de Ísland sendir 8 fulltrúa á mótið og er hér með óskað eftir að æskulýðsfulltrúar hestamannafélaganna komi meðfylgjandi auglýsingu og þessum upplýsingum áfram til áhugasamra unglinga á aldrinum 14-17 ára. Skila þarf inn umsókn til Landssambands hestamannafélaga til og með 1. apríl hvort heldur
sem er á tölvupósti: [email protected] – símbréfi 514 4031 – eða bréfleiðis til okkar að Engjavegi 6, 104 Reykjavík. Það sem þarf að koma fram í umsókninni er nafn knapa, heimilisfang, símanúmer, mynd og aldur ásamt upplýsingum um hestamannafélag og keppnisreynslu. Einnig þarf að koma fram enskukunnátta og svo þurfa 2 meðmælendur að skrifa nokkrar línur um viðkomandi. Meðmælendurnir mega ekki vera foreldrar umsækjanda. Með í för verður fararstjóri og liðsstjóri úr æskulýðsnefnd Landssambandsins. Kostnaður vegna þátttöku í mótinu er 640 evrur auk kostnaðar við kaup á flugmiða. Innifalið í kostnaðinum er gisting, fæði, kennsla, hesthúspláss og skráningargjöld fyrir keppendur. Aukagreiðslur eru hugsanlega fyrir flutning á hrossi á mótsstað, leiga á reiðtygjum og dýralækniskostnaður. Þátttakaendur geta fengið leigða hesta af mótshöldurum eða mega útvega þá sjálfir. LH er í sambandi við aðila í Þýskalandi sem gætu hugsanlega útvegað hesta. Athugið að þetta er alþjóðlegt mót og allir hestar þurfa að vera bólusettir samkvæmt reglum FEIF. Upplýsingar um það er hægt að sjá á heimasíðu samtakanna, www.feif.org Ef umsækjandi hefur aðgang að hesti vinsamlega látið það koma fram í umsókninni. Mótið fer þannig fram að á fyrsta degi (laugardegi) er þátttakendum skipt í alþjóðleg lið og er einn liðsstjóri með hverju liði. Fyrstu 3 dagana (sunnudag - þriðjudag) eru þau í þjálfun og undirbúningi fyrir keppnina og er keppt eftir sérstökum Youth Cup reglum. Síðan hvíla knapar og hestar einn dag (miðvikudag) og er þá hópnum boðið í einhvers konar skemmtiferð. Síðustu 3 dagana (fimmtudag - laugardag) fer síðan keppnin fram. Er þá bæði keppt í liða- og einstaklingskeppni. Foreldrum og öðrum gestum er ekki leyft að vera á mótstað fyrr en keppnin hefst á fimmtudeginum. Hugmyndin með alþjóðlegu liðunum er að þar fái krakkarnir tækifæri til að kynnast krökkum frá öðrum löndum, þar eignast þau oft vini til lífstíðar og einnig að æfa tungumálakunnáttuna. Með bestu kveðju, f.h. æskulýðsnefndar LH Helga B. Helgadóttir, formaður
0 Comments
Leave a Reply. |
SótiVið Breiðumýri Frír aðgangur að World Feng fyrir skuldlausa félaga. Hafið samband við Elfi [email protected].
November 2024
|