Hestamannafélagið Sóti    
  • Frettir
  • Felagid
    • Stjorn og nefndir
    • Lög félagsins
  • Reidholl
  • Reidleidir a Alftanesi
  • Frettir
  • Felagid
    • Stjorn og nefndir
    • Lög félagsins
  • Reidholl
  • Reidleidir a Alftanesi



Knapamerki hjá Spretti

9/21/2023

0 Comments

 
Picture
Bókleg knapamerkjakennsla haustið 2023

Bókleg knapamerki verða kennd í október/nóvember (ef næg þátttaka fæst) og lýkur námskeiðunum með skriflegum prófum í haust.
Námskeiðið er opið öllum þeim er hafa áhuga á að ljúka bóklegu námi í haust. Knapamerkjabækurnar fást t.d. í Líflandi, Ástund og hjá Hólaskóla. Sum bókasöfn eiga einnig eintök (ATH Nýjustu bækurnar eru allar gormabækur). Kennari bóklegra knapamerkja er Sigrún Sigurðardóttir reiðkennari.

Read More
0 Comments

Sótafélagar velkomnir á frumtamninganámskeið

9/21/2023

0 Comments

 
Picture
Róbert Petersen reiðkennari verður með vinsælu frumtamningarnámskeiðin sín í Spretti í haust. Námskeiðið hefst mánudaginn 2.október 2023 og er fyrsti tíminn bóklegur tími á 2.hæð Samskipahallarinnar, þar sem allir hóparnir mæta á sama tíma kl.18:00.

Verklegir tímar hefjast svo þriðjudaginn 3.október og þá kemur hver þátttakandi með sitt trippi. Í boði verða tímasetningar kl.17-18, 18-19, 19-20 og 20-21.
ATH! Tvö laus pláss eftir í hópinn kl.17-18, eitt laust pláss í hópinn kl.18-19. Fullt er í hópinn kl.19-20. Laus pláss í hópinn kl.20-21.

Read More
0 Comments

Vel gert!

9/20/2023

0 Comments

 
Picture
Picture
Eins og Sótafélagar hafa eflaust tekið eftir er búið að setja upp gangbraut með hraðahindrun yfir Suðurnesveg við hesthúsin.  Auk þess fullt af skiltum sem vara ökumenn við hestaumferð.  Vonandi verður þetta til þess að ökumenn hægja á sér við hesthúsahverfið.  Umferðin hefur verið alltof hröð undanfarin ár og gott að geta nú farið öruggur yfir veginn á gangbraut.

Munum einnig eftir endurskinsvestunum í vetur!

Jibbý - vel gert! 
0 Comments

Kúst og fæjó

9/16/2023

0 Comments

 
Það er greinilegt að Sóta félagar nýta haustið í að þrífa, þvo og breyta í hesthúsinu enda flest hross komin í haustbeitina.  Vefstjóri rakst á nokkra á dögunum og smellti í mynd.  Það verður gaman að taka á hús í nýþrifnu og/eða breyttu húsi ilmandi af sápulykt. 

Mig vantar kúst og fæjó
Verð að taka soldið til
Í kvöld er "hestó"
Og hreint ég hafa vil

(texti úr laginu kúst og fæjó með Heimilistónum, saumó breytt í hestó)
0 Comments

Búið að opna í Bessastaðanes

9/12/2023

0 Comments

 
Picture
Skv. Jörundi formanni er búið að opna í haustbeitina í Bessastaðanesi.  Einar Þór mun hafa umsjón fyrir hönd stjórnar svo vinsamlega látið hann vita hvenær og hve margir hestar fara frá ykkur í nesið.  Einar s: 860-7008.  Það er einungis hægt að fara með hrossin í gegnum hlið við Skansinn en Einar mun gefa ykkur upp númerið þegar þið tékkið inn.  Hann þarf einnig að láta Lögregluna á Bessastöðum vita. Ath að sama verð er fyrir allt tímabilið, þ.e.a.s. sama á hvað tíma þið hleypið inn, svo því fyrr, því ódýrara.  Beitin er frábær í nesinu - hrossin ykkar munu njóta frísins í bakgarði forsetans. 
0 Comments

"Fótbolti er stórhættuleg íþrótt"

9/3/2023

0 Comments

 
Picture
Sótaspjallið heldur nú áfram eftir sumarlangt hlé en mæðgurnar Elfur og Vigdís skoruðu síðast á Harald og Ólafíu. Þau feðgin eru miklir ferðagarpar og hafa verið Sóta félagar síðan elstu menn muna! 

Sp. Hvaða hesta verður þú með á húsi næsta vetur?
Sv: Ég, Halli, tek Flóru frá Sauðárkróki og Ólafía er að spá í Vígar frá Vatni eða Gauta frá Höskuldsstöðum.

Read More
0 Comments
    Picture

    Sóti

    Við Breiðumýri
    225 Álftanes
    Sími formanns/ Sigurjón
    s: 856-5570
    [email protected]
    www.soti.is

    Senda inn efni
    Gerast félagi í sóta
    Facebooksíða Sóta
    Picture
    Picture

    RSS Feed

    Eldri fréttir

    December 2024
    November 2024
    July 2024
    June 2024
    May 2024
    April 2024
    March 2024
    February 2024
    January 2024
    December 2023
    November 2023
    October 2023
    September 2023
    August 2023
    May 2023
    April 2023
    March 2023
    February 2023
    January 2023
    December 2022
    July 2022
    June 2022
    May 2022
    April 2022
    March 2022
    February 2022
    January 2022
    December 2021
    November 2021
    October 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    October 2020
    September 2020
    August 2020
    July 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2016
    July 2016
    June 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    October 2014
    September 2014
    July 2014
    June 2014
    May 2014
    April 2014
    March 2014
    February 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    September 2013
    August 2013
    May 2013
    April 2013
    March 2013
    February 2013
    January 2013
    December 2012
    November 2012
    October 2012
    August 2012
    July 2012
    June 2012
    May 2012
    April 2012
    March 2012
    February 2012
    January 2012
    December 2011

Powered by Create your own unique website with customizable templates.