Hestamannafélagið Sóti    
  • Frettir
  • Felagid
    • Stjorn og nefndir
    • Lög félagsins
  • Reidholl
  • Reidleidir a Alftanesi
  • Frettir
  • Felagid
    • Stjorn og nefndir
    • Lög félagsins
  • Reidholl
  • Reidleidir a Alftanesi



Íslandsmótið í hestaíþróttum 22.-27.júlí

7/9/2014

0 Comments

 
Íslandsmótið í hestaíþróttum verður haldið á félagssvæði Fáks í Reykjavík dagana 22. – 27. júlí. Mótið verður óvenju viðamikið því allir flokkar (börn, unglingar, ungmenni og fullorðnir) munu etja kappi þessa daga. Verið er að semja við veðurguðina þessa dagana og ganga þær viðræður mjög vel Margt annað verður gert til að mótið verði gott og skemmtilegt s.s. verður Reiðhöllin undirlögð af leiktækjum frá Skemmtigarðinum. Mikið verður gert fyrir keppendur og áhorfendur á mótinu svo við ætlum að eiga saman skemmtilegt Íslandsmót.

Öll forkeppni verður keyrð á tveimur völlum samtímis til að koma allri dagskráinni fyrir en reiknað er með miklum fjölda skráninga. Skráningafrestur er til miðnættis á fimmtudeginum 10. júlí og þurfa keppendur að skráð á sportfeng (mót – Fákur osfrv.).  Skráningargjald er kr. 4.000 í barna og unglingaflokki 3.500 í skeiðgreinar (nema gæðingaskeið) og 5.500 í fullorðinsflokkum (skráning staðfest með greiðslu, annað ekki tekið til greina). Einnig verður hægt að skrá sig til miðnættis sunnudaginn 13. júlí en þá eru skráningargjöldin 2.000 kr. hærri á hverja grein. Keppendur athugið að það er einn keppandi inn á vellinum í einu nema í fjórgangi barnaflokki, en þar verða 3 inn á í einu og riðið eftir þul.

Tjaldstæði og hesthús á svæðinu.

Við hvetjum knapa til að fylgjast vel með upplýsingum á heimasíðu Fáks sem og facebooksíðu Fáks („læka“ facebooksíðuna á heimasíðunni og stofnaður sér hópur fyrir þátttakendur, endilega gangið í þann hóp).

Keppnisnefnd L gefur á hverju ári út þær lágmarkseinkunnir sem par þarf að hafa náð til að skrá sig í keppnisgreinar á Íslandsmóti fullorðinna. Engin lágmörk eru í barna, unglinga og ungmennaflokki og er öllum heimilt að skrá sig þar en fullorðnir þurfa að hafa náð eftirtöldum árangri með hestinn á keppnistímabilinu 2014 eða 2013:

Tölt: 6,5

Fjórgangur: 6,2

Fimmgangur: 6,0

Slaktaumatölt: 6,2

Gæðingaskeið: 6,5

250 m skeið: 26,0 sek.

150 m skeið: 17,0 sek

100 m skeið: 9,0 sek.

Opið punktamót verður í Fáki á laugardaginn.

Hlökkum til að sjá sem flesta.

Kveðja frá mótanefnd Íslandsmótsins

0 Comments
    Picture

    Sóti

    Við Breiðumýri
    225 Álftanes
    Sími formanns/ Sigurjón
    s: 856-5570
    [email protected]
    www.soti.is

    Senda inn efni
    Gerast félagi í sóta
    Facebooksíða Sóta
    Picture
    Picture

    RSS Feed

    Eldri fréttir

    December 2024
    November 2024
    July 2024
    June 2024
    May 2024
    April 2024
    March 2024
    February 2024
    January 2024
    December 2023
    November 2023
    October 2023
    September 2023
    August 2023
    May 2023
    April 2023
    March 2023
    February 2023
    January 2023
    December 2022
    July 2022
    June 2022
    May 2022
    April 2022
    March 2022
    February 2022
    January 2022
    December 2021
    November 2021
    October 2021
    June 2021
    May 2021
    April 2021
    March 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    October 2020
    September 2020
    August 2020
    July 2020
    June 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    January 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2016
    July 2016
    June 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    October 2014
    September 2014
    July 2014
    June 2014
    May 2014
    April 2014
    March 2014
    February 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    September 2013
    August 2013
    May 2013
    April 2013
    March 2013
    February 2013
    January 2013
    December 2012
    November 2012
    October 2012
    August 2012
    July 2012
    June 2012
    May 2012
    April 2012
    March 2012
    February 2012
    January 2012
    December 2011

Powered by Create your own unique website with customizable templates.