Verkefnastjórinn og steypuhrærivélin sem hefur verið mikið notuð! Vinnan við gerðið okkar góða er í fullum gangi og er unnið alla þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 18:00 - 20:30. Nú fer að styttast í að gerðið verði heilklætt en til þess að það megi verða þurfum við að klára útbyggingarnar á norðurhliðinni. Við þurfum á allri ykkar hjálp að halda og hlökkum til að sjá ykkur í vikunni! Vonandi getum við svo heilklætt (og þar með klárað) þetta hið fyrsta. Þegar það gerist verður hringt út í alla Sótafélaga nær og fjær en stefnt er á að skapa mikla (Amish?) stemningu! Sjáumst hress á þriðjudag og/eða miðvikudag! Ath að bæði karlar og konur eru velkomin :-) Kveðja Steinunn formaður og Jörundur verkefnastjóri
0 Comments
Sörli , Sóti og Fákur eru með sameiginlega bókleg kennslu í knapamerkjum 1-2-3-4-5. Bókleg kennsla mun fara fram í október og svo mun verkleg kennsla hefjast í janúar hjá öllum félögum.
Markmiðið með þessu er að auka gæði bóklegu kennslunnar og jafnframt gera námið skilvirkara og hagkvæmara fyrir nemendur. Nemendur geta einnig tekið bóklega námið sér og þá verklega seinna en fá reyndar ekki prófskirteini afhent fyrr en bæði verklegt og bóklegt er búið í viðkomandi knapamerki. Athugið að ekki verður boðið upp á bóklegt nám í knapamerkjum aftur fyrr en næsta haust. Námskeiðið er opið öllum þeim er hafa áhuga á að ljúka bóklegu námi í haust. Skráning á [email protected] eða [email protected] skráningafrestur er til 10.okt.. Athugið er að ná þarf 12 ára aldri til að mega hefja nám í knapamerkjum. Nánari upplýsingar um knapamerki má finna hér: http://knapi.holar.is/ Drög að fyrirkomulagi: Kennt verður á í Félagsheimili Fáks.Á mánudögum og miðvikudögum kl. 17:00 – 19:00 Knapamerki 1 og 2 eru kennd saman. ( 3 skipti)Kl. 19-21 Knapamerki 3. (3 skipti)Á þriðjudögum og fimmtudögum er kl. 17-19 knapamerki 4 (4 skipti)kl. 19-21 knapamerki 5 (4 skipti) Þeir sem ætla fara í knapamerki 5 eiga/mega að sitja alla tíma en þeir taka próf úr öllum knapamerkjastigunum. Kennari verður Sigrún Sigurðardóttir og mun hún einnig fá gestakennara í lið með sér s.s. Ólöfu Loftsdóttur dýralækni og Sigurð Sæmundsson járningameistara. Vinnan við gerðið hefur gengið mjög vel og hafa flestir Sóta félagar mætt a.m.k. einu sinni (og margir oft) til að leggja hönd á plóg. Þetta hefur hins vegar tekið meiri tíma en áætlað var í upphafi enda mikið verk að reisa heiklætt gerði, nokkurs konar þaklausa reiðhöll.
Næsti vinnudagur verður á morgun, laugardaginn 6.október frá kl. 10-14:00 og eru allar hendur vel þegnar. Einhverjir munu verða settir í að klára ,,friðarmúrinn" þ.e.a.s. grænu girðinguna meðfram Suðurnesvegi. Það hefur verið mikil og góð stemning meðal vinnumanna og einstaklega gaman að vinna með öllu þessu góða fólki. Formaður og verkefnastjóri senda miklar og góðar þakkir til allra sem hafa þegar mætt og hlakka til að sjá ykkur aftur og helst fleiri til. Hmf Sóti má svo sannarlega vera stolt af sínum félagsmönnum og góðum félagsanda. |
SótiVið Breiðumýri Frír aðgangur að World Feng fyrir skuldlausa félaga. Hafið samband við Elfi [email protected].
July 2024
|