Hestamannafélagið Sóti    
  • Frettir
  • Felagid
    • Fundargerdir
    • Vetrardagskrá
  • Stjorn og nefndir
    • stjorn og nefndir 2021
    • Eldri stjórn og nefndir
  • Reidholl
  • Reidleidir a Alftanesi
  • Frettir
  • Felagid
    • Fundargerdir
    • Vetrardagskrá
  • Stjorn og nefndir
    • stjorn og nefndir 2021
    • Eldri stjórn og nefndir
  • Reidholl
  • Reidleidir a Alftanesi

Almennar upplýsingar 

Reiðhöll Sóta er opin á milli 08:00 til 23:00 alla daga vikunnar fyrir skuldlausa félagsmenn í Sóta gegn greiðslu árgjalds.

Eftir klukkan 17:00 á virkum dögum á reiðhöllin að vera opin félagsmönnum til æfinga og þjálfunar og er þá ekki leigð út til annarra viðburða. Undantekningar frá því gætu þó verið viðburðir á vegum félagsins eins og mót, sýningar, námskeið og kennsla. Skal þess gætt að slíkt sé auglýst hér á vef Sóta undir flipanum Reiðhöll.

Stjórn Sóta sér um skipulagningu og bókun á tímum. 
​

Notendur eru hvattir til að kynna sér reglur reiðhallarinnar og helstu reiðleiðir á reiðvöllum.
Þeir félagsmenn sem ætla að nýta reiðhöllina eru beðnir um að senda tölvupóst á hestamannafelagidsoti@gmail.com með nafni og kennitölu iðkanda. Ef iðkandi er unglingur þarf að auki að koma fram nafn og kennitala greiðanda.

Iðkendur fá afhentan aðgangslykil að reiðhöllinni til eigin afnota.   Lyklagjald er kr 3.000.- sem endurgreiðist þegar lykli er skilað, t,d, ef iðkandi endurnýjar ekki árgjaldið sitt. 
Verðskrá 


Árgjald fyrir 2023:
Fullorðnir (18 ára og eldri) kr. 15.000,--
14 til 17 ára kr. 7.500,--
13 ára og yngri eru gjaldfrjálsir en verða að vera
 í fylgd með fullorðnum einstaklingi sem er skuldlaus félagsmaður í Sóta.

Gjald fyrir tíma til einkakennslu/þjálfunar ( reiðhöllin lokuð öðrum iðkendum).
30 mín.  kr. 2.500,--
60 mín.  kr. 3.900,--
Félaga í Sóta er heimilt að njóta leiðsagnar í einstaklingskennslu á opnum tíma („úr stúku“ með hljóðnema) án þess að lokað verði fyrir notkun annarra á sama tíma.
​
Fráteknir tímar í Celcius höllinni - 2023
Mánudagar frá 23 janúar - 14 mars:  16:00 - 22:00 - Reiðnámskeið Atli Guðmundsson
Fráteknir tímar í Celcius höllinni - vetur/vor 2022

Miðvikudagar frá kl. 15:00 - 18:30 vegna keppnisnámskeiðs frá 6. apríl - lok maí

Laugardagur 19 mars frá kl. 13-17:00 vegna vetrarleika og folaldasýningar
Þriðjudagar frá kl. 17 - 22:20:  Reiðnámskeið Hinrik Sigurðsson frá 15 mars - lok maí
Miðvikudagar frá kl. 18:30 - 20:30:  Reiðnámskeið Atli Sigurðsson frá 9 mars - 14 april
Fimmtudagar frá kl. 17:00 - 19:30:  Reiðnámskeið Atli Sigurðssson frá 3 mars - lok maí

Fráteknir tímar í höllinni - vetur 2022

Mánudagar frá kl. 17 - 20:00:  Knapamerki frá 1. janúar - 14. febrúar
Þriðjudagar frá kl. 17 - 21:40:  Reiðnámskeið Hinrik Sigurðs frá 25. janúar - 1. mars
Miðvikudagar frá kl 16:30 - 19:30:  Knapamerki frá 1. janúar - 14. febrúar
Fráteknir tíma í höllinni - haust 2021

Ath:  þann 14 desember (þriðjudagur) verður höllin lokuð vegna knapamerkjanámskeiðs frá 16:30-18:30

Nóvember & Desember
Mánudagar frá kl. 17:15 - 19:15:  Knapamerki
Miðvikudagar frá kl. 16:30 - 18:30:  Knapamerki
Fráteknir dagar/tímar 2021
ATH:  Höllin verður lokuð á kvöldin kl. 20:30 vegna lagfæringar 
Janúar 
Mán 18 jan:  15:30 - 18:30:  v/Knapamerki
Mán 25 jan:  15:30 - 18:30:  v/Knapamerki
Mið  27 jan:  15:30 - 18:30:  v/Knapamerki
Febrúar 
Eftifarandi mánudaga og miðvikudaga í febrúar frá kl. 15:30 - 18:30:  v/Knapamerki 
Mánud:  1, 8, 15 
Miðvikud: 3, 10 ,17 
(ath ekki kennt 22 og 24) 
Fös 12 feb:  17-20:00 v/knapamerki 
Lau 13 feb:  09-19:00: v/reiðnámsk 
Sun 14 feb:  09-1900: v/reiðnámsk 
Lau 20 feb:  09-15:00:  v/vetrarleika 
Fim 25 feb:  15-20:00 v/reiðnámsk
​
Mars
Fim 4 mars: 15:30-20:30 v/reiðnámsk
Lau 5 mars:  ?  v/smalakeppni 
Sun 6 mars:  10:00-13:00 v/reiðnámsk 
Mið 10 mars:  16:10-18:30 v/knapam
Fim 11 mars:  15:30-20:30 v/reiðnámsk
Fös  12 mars: 13:30-17:00 v/reiðnámsk
Lau 13 mars:  09-19:00 v/reiðnámsk
Sun 14 mars: 09-19:00 v/reiðnámsk 
Mán 15 mars:  15:30-18:30 v/knapam
Mið 17 mars: 18:55-20:30 v/knapam
Fim 18 mars: 15:30-20:30 v/reiðnámsk
Sun 20 mars:9:00- 12:00 v/reiðnámsk
Mið 24 mars:  17:30-18:30  v/knapam 
Fim 25 mars:  15:30-20:30 reiðnámsk 
Lau 27 mars: 09-12:00 v/reiðnámsk
Mið 31 mars: 17:30-18:30 v/knapam 

Apríl
Fim 1 apr: 15:30-20:30 v/reiðnámsk
Lau 3 apr:  10-13;:00 v/reiðnámsk
Fim 8 apr:  15-19:30 v/reiðnámsk
Fös 9 apr:  12:30-13:30 v/knapam
Lau 10 apr:  09-19:00 v/reiðnámsk
Sun 11 apr:  09-19:00 v/reiðnámsk
Þri 13 apr:  15-19:30 v/reiðnámsk 

Mið 14 apr:  17:30-18:30 v/knapam
Fim 15 apr:  15-19:30 v/reiðnámsk
Þri 20 apr:  15-19:30 v/reiðnámsk 
Mið 21 apr:  17:30-18:30 v/knapam 

Fim 22 apr:  15-19:30 v/reiðnámsk
Þri 27 apr:  15-19:30 v/reiðnámsk 
Mið 28 apr: 17:30-18:30 v/knapam 

Fim 29 apr:  15-19:30 v/reiðnámsk

Maí 
Þri 4 maí:  15-19:30 v/reiðnámsk 
Mið 5 maí:
 17:30-18:30 v/knapam 

Mið 12 maí: 17:30-18:30 v/knapam 
Mið 19 maí: 17:30-18:30 v/knapam  
​Mið 26 maí: 17:30-18:30 v/knapam 

Almennar reglur í reiðhöll Sóta

1. Knöpum er skylt að nota reiðhjálma og skulu sýna kurteisi, tillitssemi og forðast óróa eða hávaða.

2. Knöpum ber að hreinsa upp eftir hesta sína og eru verkfæri til þess staðsett í reiðsal.

3. Lausaganga hunda og reykingar eru bannaðar.

4. Iðkendur og gestir eru á eigin ábyrgð. Börn undir 18 ára aldri eru á ábyrgð forráðamanna.

5. Teymið inn og út úr reiðhöllinni og látið aðra vita áður en teymt er inn á völlinn. Farið á bak og af baki inn á miðjum vellinum en
ekki á reiðleiðum í útjaðri vallar. 


6. Fetgangur skal riðinn á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari gangtegund á ytri sporaslóð. Þeir sem ríða hægari gangtegund skulu ávallt víkja fyrir þeim er hraðar fara.

7. Tvær hestlengdir skulu ávallt milli hesta. Ekki má ríða hlið við hlið eða hafa tvo hesta til reiðar þegar aðrir eru í salnum.

8. Hægri umferð gildir þegar knapar mætast úr gagnstæðri átt ef riðinn er sami hraði. Undantekning frá því er ef annar knapi ríður hraðar skal honum eftirlátin ytri sporaslóð.

9. Knapi sem ríður bauga, á hringnum, eða aðrar reiðleiðir inni á velli veitir þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð.

10. Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð. Ef stöðva þarf er best að gera slíkt inni á miðjum velli nema um annað sé samkomulag þeirra í milli er stunda æfingar á vellinum     hverju sinni.

11. Hringtaumsvinna fer engan veginn saman við þjálfun í reið og skal víkja nema um annað sé sérstaklega samið.

12. Knapi skal forðast óþarfa hávaða t.d með pískhljóðum sem gætu truflað aðra knapa.

13. Ekki skal æfa stökk þegar fleiri en 1 eru á vellinum.

14. Forðast skal að ríða þvert í veg fyrir aðra knapa.

15. Fylgja ber hefðbundnum reiðleiðum á vellinum.

16. Reiðkennsla niðri á gólfi er bönnuð í opnum tímum.

​17. Ekki má hafa lausa hesta á vellinum meðan á reiðþjálfun stendur né binda hesta þar inni.
Powered by Create your own unique website with customizable templates.