Á námskeiðinu er farið í gegnum helstu þætti frumtamningar, s.s:
-Atferli hestsins -Leiðtogahlutverk -Fortamning á trippi -Undirbúningur fyrir frumtamningu -Frumtamning Bóklegir tímar: 1 Verklegir tímar: 11 Tímar: 3x í viku – mánudagar, þriðjudagar og fimmtudagar í 4 vikur Staðsetning: Samskipahöllin, hólf 1 Verð: 58.000.- Fjórir nemendur verða í hverjum hópi en hámarksfjöldi á námskeiðið er 12-16 þátttakendur (3-4 hópar). Bóklegur tími verður sameiginlegur fyrir allan hópinn og verður haldinn kl.18 mánudaginn 2.október á 2.hæð Samskipahallarinnar, allir hóparnir mæta á sama tíma í bóklegan tíma. Verkleg kennsla verður í Samskipahöllinni, byrjað verður frammi í rennunni og svo færist námskeiðið inn í reiðhöllina, hólf 1. Einnig eiga nemendur að fylgjast með öðrum og læra þannig á mismunandi hestgerðir og mismunandi aðferðir við for- og frumtamningu. Námskeiðið er opið fyrir alla félaga í hestamannafélögum. Skráning fer fram á Sportabler, sjá hér; www.sportabler.com/shop/hfsprettur
0 Comments
Leave a Reply. |
SótiVið Breiðumýri Eldri fréttir
December 2024
|