Kynbótadeildin stefnir á skemmtikvöld í byrjun febrúar þar sem ræktendum í Sóta gefst tækifæri á að kynna sína eigin ræktun t.d. með glærukynningu. (deildin mun aðstoða þá sem þurfa hjálp við það - hafa samband við Gunnar Karl). Létt spjall og skemmtilegheit á föstudagskvöldi. Nú er bara að fara út og taka myndir (eða finna myndir) af upprennandi stjörnum, feðrum þess og mæðrum og slá í gegn! Meðfylgjandi mynd er af graðhestinum Krumma frá Álftanesi.
0 Comments
Eftir örlitlar breytingar frá aðalfundi birtist hér með nýr listi yfir stjórn og nefndir 2013.
Eftirfarandi nefndir eru boðaðar á fundi: Fimmtudaginn 4. janúar kl. 20:00 Fræðslu og skemmtinefnd kl. 21:00 Æskulýðsnefnd Laugardaginn 6. janúar kl.10:00 Mótanefnd kl 10:30 Rit og tölvunefnd kl 11:00 Mannvirkjanefnd Stefnt er á að vetrardagskrá verði tilbúin 15 janúar (í dagatalsformi!) Nýr listi yfir stjórn og nefndir má finna hér Kæru Sótafélagar Gleðilegt nýtt útreiðarár og takk fyrir viðburðarríkt og skemmtilegt nýliðið ár. Við megum svo sannarlega vera stolt af okkur sjálfum árið 2012. Fyrir utan góðan árangur á mótum og í félagslífi þá áttum við stóran þátt í einum flottasta viðburði á árinu (riðið á landsmót) og síðast en ekki síst, smíðuðum glæsilegt mannvirki, sem mun vonandi gagnast okkur vel og lengi. Kærar þakkir ykkar allra sem tókuð þátt í hvers kyns sjálfboðaliðastörfum á vegum Sóta árið 2012. Nýja árið lofar góðu og vona ég að við höldum áfram að vera öflugt félag þar sem samheldni og samhugur ræður ríkjum. Í þessari viku mun ég kalla allar nefndir á fund þar sem hver nefnd mun kjósa sér formann, setja saman vetrardagskrá og koma starfinu í fullan gang. Ég vona að allir félagar verði öflugir því það erum jú við sjálf sem sköpum félagið. Oft verður lítil hugmynd að stóru verki (sbr t.d. riðið á landsmót). Ef þú, Sótafélagi góður, lumar á hugmynd sem er til þess fallinn að bæta félagsstarfið, þá endilega komdu henni á framfæri við stjórn eða viðkomandi nefnd eða hreinlega framkvæmdu hana sjálf/ur. Stundum er betra að ganga í hlutina sjálfur en að bíða eftir að einhver annar geri það :-) Ég hlakka til vetursins og hef heyrt á skotspónum að mótanefnd sé að skipuleggja nýja og skemmtilega mótaröð sem allir geti tekið þátt í. Vonandi munu aðrar nefndir einnig brydda uppá nýjungum og endilega nota gerðið sem mest! Njótum hestanna okkar og tökum þátt í uppákomum félagsins í vetur, Ég geri orð John F. Kennedy að mínum: ,,Kæru Sótfélagar, spyrjið ekki hvað félagið geti gert fyrir ykkur, heldur hvað þið getið gert fyrir félagið“ . Með áramótakveðju Steinunn (betra er að birta fréttir seint en aldrei.......) Vígsla á hinu nýja og glæsilega Sóta Skjóli fór fram laugardaginn 22. desember en þá var einnig smalað úr Bessastaðanesinu. Viðburðurinn hófst með því að 70 hross voru rekin inn í gerðið, því lokað og síðan fór formaður með stutt ávarp þar sem öllum sem komu að einhverjum hætti að gerðinu voru þökkuð vel unnin störf ásamt vísukorni að hætti Sóta (má lesa undir read more). Því næst klipptu bæjarstjórarnir, Snorri Finnlaugsson og Gunnar Einarsson, á borðann (ásamt Jörundi verkefnastjóra) og fóru síðan báðir með stutt ávarp sem sem þeir töluðu báðir um hvað samtakamáttur og sjálfboðaliðastörf séu mikilvæg og hvað við mættum vera stolt af félagsandanum. Að loknum ræðuhöldum var haldið inn í félagsheimili þar sem stjórnin bauð uppá heitt súkkulaði með rjóma og þjóðlegar veitingar. Brokkkórinn kom og seldi dagatöl og að sjálfsögðu tóku þeir lagið. Mikill mannfjöldi mætti á staðinn og dagurinn einstaklega vel heppnaður þrátt fyrir slæma veðurspá. Myndir eru á facebook síðu Sóta en Guðmundur var með myndavélina á lofti. |
SótiVið Breiðumýri Frír aðgangur að World Feng fyrir skuldlausa félaga. Hafið samband við Elfi elfure@simnet.is.
April 2024
|