Fín þátttaka var á öðrum opnum vetrarleikum Sóta sem haldnir voru á velli félagsins í dag, laugardag. Annars vegar var keppt í tvígangi og hins vegar brokki, sem mörgum reyndist erfitt. Þau leiðu mistök áttu sér stað í brokkkeppninni að sætaröðun reyndist röng. Viljum við í mótanefnd biðja þá keppendur sem færast niður um eitt sæti sem og þann sem var ekki kallaður upp, innilegrar afsökunar. Vonandi hafa allir haft gaman af keppninni og við hlökkum til að sjá alla og fleiri til á næstu keppni. En úrslit fóru þannig:
Tvígangur 17 ára og yngri: 1. Ólafía María Aikman, Sóta, á Ljúf frá Brúarreykjum 10 stig 2. Sylvía Sól Magnúsdóttir, Brimfaxa, a Fenju frá Holtsmúla 1 8 stig 3. Birna F. Steinarsdóttir, Sóta, á Kolskeggi frá Laugabóli 6 stig 4. Margrét Lóa Björnsdóttir, Sóta, á Íslandsblesa frá Dalvík 4 stig 5. Margrét Lóa Björnsdóttir, Sóta, á Breka frá Brúarreykjum 6. Heiðar Snær Rögnvaldsson, Sóta, á Króniku frá ? 2 stig 7. Ásdís Agla Brynjólfsdóttir, Sóta, á Þulu frá Bæ 2 1 stig 8. Þórir Sigtryggsson, Sóta, á Aþenu frá Hafnarfirði 1 stig Tvígangur 18 ára og eldri 1. Einar Þór Jóhannsson, Sóta, á Toppu frá ? 10 stig 2. Bryndís Einarsdóttir, Sóta, á Hildu frá ? 8 stig 3. Jóhann Þór Kolbeins, Sóta, á Eini frá Stóru-Hildisey 6 stig 4. Jóhann Þór Kolbeins, Sóta, á Hrönn frá Síðu 5. Gunnar Karl Ársælsson, Sóta, á Lokki frá Raufarfelli 2 4 stig 6. Olga María Högnadóttir, Sóta, á Sigurfara frá Húsavík, 2 stig 7. Gunnar Karl Ársælsson, Sóta, á Klassík frá Litlu-Tungu Brokk 17 ára og yngri 1. Birna F. Steinarsdóttir, Sóta, á Kolskeggi frá Laugabóli 10 stig 2. Margrét Lóa Björnsdóttir, Sóta, á Breka frá Brúarreykjum 8 stig Ásdís Agla Brynjólfsdóttir 1 stig Sylvía Sól Magnúsdóttir 1 stig Heiðar Snær Rögnvaldsson 1 stig Brokk 18 ára og eldri 1. Einar Þór Jóhannsson, Sóta,á Hildu frá ? 10 stig 2. Gunnar Karl Ársælsson, Sóta, á Lokki frá Raufarfelli 8 stig 3. Haraldur Á Aikman, Sóta, á Ljúf frá Brúarreykjum 6 stig 4. Jóhann Þór Kolbeins, Sóta, á Hrönn frá Síðu 4 stig 5. Olga María Högnadóttir, Sóta, á Sigurfara frá Húsavík 2 stig 6. Bryndís Einarsdóttir, Sóta, á Aþenu frá Hafnarfirði 1 stig Stigasöfnun keppenda eftir fyrstu tvö mótin verður birt eins fljótt og hægt er.
0 Comments
Leave a Reply. |
SótiVið Breiðumýri Frír aðgangur að World Feng fyrir skuldlausa félaga. Hafið samband við Elfi [email protected].
November 2024
|