![]() Alltaf gott að minna á umferðarreglur hestmanna 1. Hestamenn víkja til hægri á reiðleiðum. 2. Hestar sem eru teymdir skulu ávallt vera hægramegin og ekki fleiri en tveir ( þrír til reiðar ). 3. Reiðhjálmar eru sjálfsögð öryggistæki. 4. Endurskinsmerki í skammdegi veita hestum og mönnum aukið öryggi. 5. Lausir hundar eru ekki leyfilegir á reiðleiðum og í hesthúsahverfum. 6. Áfengi og útreiðar fara ekki saman. 7. Sýnum tillitsemi, ríðum ekki hratt á móti eða aftanundir aðra reiðmenn. 8. Fari margir hestamenn saman í hóp skal ríða í einfaldri röð ef umferð er á móti. 9. Ríðum á reiðvegum og slóðum þar sem því verður viðkomið. 10. Teymum hesta, rekstrar eru bannaðir í þéttbýli. Landssamband hestamannafélaga Ferða- og samgöngunefnd.
0 Comments
Leave a Reply. |
SótiVið Breiðumýri Frír aðgangur að World Feng fyrir skuldlausa félaga. Hafið samband við Elfi elfure@simnet.is.
May 2022
|