Hestaat í Hörpu
Fyrir dyrum standa Hestadagar. Þeir hefjast með formlegum hætti fimmtudaginn 3. apríl kl. 19:00 við Hörpuna. Dagskrá kvöldsins þar verður með þessum hætti: • Kl: 19:00 – Fultrúar félaga á höfuðborgarsvæðinu koma ríðandi að Hörpu með fána sinna félaga og formlega tekið á móti gestum með fordrykk í anddyri Hörpu. Hestadagar settir formlega. • Kl: 20:00 – Hestaat í Hörpu. Hér leiða saman hesta sína Hilmir Snær og hljómsveitirnar Brother Grass og Hundur í óskilum. Boðið verður upp á nýstárlegt, tónrænt uppistand í Norðurljósasal Hörpu. Íslenski hesturinn verður skoðaður frá öllum hliðum og rifjuð upp rysjótt sambúð hans við ótamin náttúruöfl og brokkgenga þjóð. Miðinn á Hestaatið kostar kr. 4.000 á midi.is. LH langar hins vegar að bjóða hestamönnum betri kjör eða miðann á kr. 3.500 ef 10 manns eða fleiri taka sig saman og panta miða sem hópur. Þá verða miðakaupinn að fara í gegnum skrifstofu LH, [email protected]. Tilboðið gildir til þriðjudagsins 1. apríl. Er ekki upplagt að skapa stemningu fyrir þessum einstaka viðburði í Hörpunni og skella sér í bæinn á Hestadaga? Formenn góðir – boltinn er hjá ykkur. Bjóðið ykkar félögum góð kjör, búið til stemningu og fögnum hestatengdri menningu í borginni. Vinsamlegast kynnið vel á ykkar vefmiðlum, bæjarfélögum og sendið á póstlista. Í viðhengi er plakat sem má prenta út til kynningar. Hlökkum til að sjá ykkur í Hörpu á fimmtudagskvöldið eftir viku! Stjórn og starfsfólk LH.
0 Comments
Leave a Reply. |
SótiVið Breiðumýri Frír aðgangur að World Feng fyrir skuldlausa félaga. Hafið samband við Elfi [email protected].
July 2024
|