Æskulýðsnefnd hyggur á eftirtalin reiðnámskeið í vetur/vor: Janúar og Febrúar: Sunnudagar frá kl. 11-13:00 Kennt verður í Sörlahöllinni (3 timar þurfa þó líklega að vera í Gusti) 45-60 min per hópur Kennari: Karen W. Barrysdóttir Almennt reiðnámskeið þar sem lögð verður áhersla á gleði og ánægju (engir afturfótasnúningar, krossgangur eða þess háttar) Þrautabrautir, að ríða berbakt, útreiðtartúr (ef veður og reynsla leyfir), kennsla í formi gleði. Skipt verður í hópa eftir getu og fjölda. Miðað er við að börnin geti riðið ein án aðstoðar (aldur er afstæður) Fyrsti tíminn verður sunnudaginn 15.janúar og síðasti 4. mars Verð AÐEINS kr. 5.000.- per barn (það má athuga með leigu á hestum á Sörlastöðum fyrir þá sem ekki eiga hentuga hesta) Flutningur til/frá Sóta ræðst af þátttöku ofl en vonast er til að allir geti aðstoðað :-) April og Maí Fyrihugað er að halda bæði almennt reiðnámskeið, pollanámskeið og keppnisnámskeið úti hjá okkur í Sóta þegar fer að vora. Nánar auglýst síðar. ATH ATH ATH ÞAU BÖRN SEM ÆTLA AÐ SKRÁ SIG Á REIÐNÁMSKEIÐ INN Í HÖLLINNI ÞURFA AÐ SKRÁ SIG FYRIR 3.JANÚAR - VIÐ VERÐUM AÐ FÁ AÐ VITA FJÖLDA FYRIR ÞANN TÍMA. Vonandi sjáum við sem flest börn - það er leikur að læra! Kveðja Æskulýðsnefnd
0 Comments
Leave a Reply. |
SótiVið Breiðumýri Frír aðgangur að World Feng fyrir skuldlausa félaga. Hafið samband við Elfi [email protected].
November 2024
|