Þar sem ekkert félag skráði sig á opnu fjöruleika Sóta þá ætlum við samt að halda okkar striki og skemmta okkur saman. Því ætlar æskulýðs - og ferða/skemmti nefnd að taka höndum saman og bjóða Sótafélögum uppá spennandi fjörudagskrá MIÐVIKUDAGINN 13. JÚNÍ Mæting í félagshúsi kl. 19:30 þaðan sem riðið verður saman í Helguvíkina (Löngufjörur hvað?) . Þar verður farið í leiki og sjósund fyrir þá sem vilja. Við förum síðan aftur í félagshús þar sem boðið verður uppá miðnæturgrill og gleði. Þar sem við þufum að vita fjölda vegna matarinnkaupa (ath ekki pylsur eða hamborgarar........) verðum við að biðja ykkur um að skrá ykkur sem allra fyrst annað hvort með því senda póst á [email protected] eða hér fyrir neðan. Vinsamlega komið með ykkar eigin drykki (hvad som helst), annars verður bara boðið uppá vatn úr krananum....... Matur kostar 500,- kr per fullorðinn, frítt fyrir börn17 ára og yngri. Koma svo allir saman! Þetta er sko eitthvað sem enginn má missa af. Kveðja Nefndirnar p.s. Gott að taka með aukaföt í poka eða vera í sundskýlunni/bikini innan undir reiðfötunum.
0 Comments
Leave a Reply. |
SótiVið Breiðumýri Frír aðgangur að World Feng fyrir skuldlausa félaga. Hafið samband við Elfi [email protected].
November 2024
|