Opnir fjöruleikar Sóta
Hestamannafélagið Sóti, æskulýðsnefnd, heldur í fyrsta sinn OPNA fjöruleika!
Keppt verður í liðakeppni og þarf hvert félag að senda að lágmarki fjóra liðsmenn (endilega skrá félagið þó ekki náist í fullt lið...!)
Keppt verður í:
A: Fjörukappreiðar 150 m (boðhlaup í fjörunni)
B: Þrautabraut í fjörunni
C: Fet-kappreiðar með ævintýraívafi (fyrir þá sem ekki treysta sér í hitt)
D: Pollar - búningar - flottasta félagsþemað
E: Brokk-boðhlaup (1 hringur) meðal foreldra (gildir í stigasöfnun) á vellinum meðan grillað er.
Öllum keppendum er síðan velkomið að prófa sjósund - þeir sem þora!
Eftir mót er boðið uppá grillaðar pylsur eða hamborgara.
Stund: Mánudagurinn 11. júní kl. 18:00
Staður: Fjaran á Álftanesi (mæting við félagshús)
Hvert félag þarf að greiða 5.000.- í þátttökugjald og skráning fer fram á netfanginu soti@internet.is eða á heimasíðu félagsins (undir æskulýðsnefnd). Hægt er að skrá í eitt lið eða fleiri í allar keppnir eða eitt lið í eina keppni. Nóg er að skrá nafn félagsins til að byrja með en nöfn keppanda þurfa að berast í síðasta lagi föstudaginn 8. júní.
Með von um að æskulýðsnefndir félaganna sjái sér fært um að mæta með öfluga yngri félagsmenn!
Kær kveðja / Æskulýðsnefnd Sóta
Æskulýðsnefnd Sóta