Þar sem ekkert félag skráði sig á opnu fjöruleika Sóta þá ætlum við samt að halda okkar striki og skemmta okkur saman. Því ætlar æskulýðs - og ferða/skemmti nefnd að taka höndum saman og bjóða Sótafélögum uppá spennandi fjörudagskrá MIÐVIKUDAGINN 13. JÚNÍ Mæting í félagshúsi kl. 19:30 þaðan sem riðið verður saman í Helguvíkina (Löngufjörur hvað?) . Þar verður farið í leiki og sjósund fyrir þá sem vilja. Við förum síðan aftur í félagshús þar sem boðið verður uppá miðnæturgrill og gleði. Þar sem við þufum að vita fjölda vegna matarinnkaupa (ath ekki pylsur eða hamborgarar........) verðum við að biðja ykkur um að skrá ykkur sem allra fyrst annað hvort með því senda póst á soti@internet.is eða hér fyrir neðan. Vinsamlega komið með ykkar eigin drykki (hvad som helst), annars verður bara boðið uppá vatn úr krananum....... Matur kostar 500,- kr per fullorðinn, frítt fyrir börn17 ára og yngri. Koma svo allir saman! Þetta er sko eitthvað sem enginn má missa af. Kveðja Nefndirnar p.s. Gott að taka með aukaföt í poka eða vera í sundskýlunni/bikini innan undir reiðfötunum.
0 Comments
Þar sem ekkert félag hefur skráð sig í Opna Fjöruleika Sóta, sem áttu að vera í dag, falla þeir niður. Við munum hins vegar reyna aftur að ári og vonandi getum við haft þá í lok maí en það er flóð og fjara sem stjórna því.
Sótafélagar ætla hins vegar að leika sér í fjörunni í vikunni og viljum við nota tækifærið og hvetja Sótafélaga til að fylgjast með tölvupósti og heimasíðu þar af lútandi. Við í Sóta erum að skipuleggja viðburð á LM sem kallast Ríðum á Landsmót. Hestamannafélögin á stór höfuðborgarsvæðinu munu taka þátt í þessu með okkur en lagt verður af stað frá Bessastöðum, sunnudaginn 24 júní kl. 11:00 og munum við síðan sækja hestamannafélögin, eitt af öðru. Hersingin endar síðar frá Almannadal kl. 15:00 þar sem við ríðum á stóra völlinn í Víðidal. Þetta á að vera hestaferða-fílingur, skálmar, hnakktöskur og tilheyrandi. Nánari upplýsingar er að finna hér. Þar sem við í Sóta erum svo vel í sveit sett með að hafa hrossin okkar í sumarbeit á Álftanesi þá hvetjum við alla sem eru með hesta á nesinu að koma með okkur í þessa reið. Þetta verður bara gaman. Þessar peysur frá 66N (Grettir) eru í boði fyrir Sótafélaga, svona til að vera í einkennisklæðnaði á Landsmóti. Sóta merkið verður bæði aftan- og framan á og auglýsingar á ermum Hægt er að velja um annað hvort rauðar eða svartar (eða báðar) Athugið að þessar peysur verða seldar á einungis á 2.500.- kr stk TIL FÉLAGSMANNA. Nokkrir félagar hafa safnað auglýsingum á peysurnar og því eru þær verulega niðurgreiddar. Einnig eru gömlu góðu Sóta húfurnar í boði sem munu kosta 1.500.- kr stk. Svipaðar peysur er hægt að fá í barnastærðum (Frigg) Hægt að panta beint hér á netinu en athugið að kerfið býður bara uppá eina pöntun í einu. En það er líka hægt að setja í athugasemdir allar stærðir eða senda póst á soti@internet.is ATH: Síðasti pöntunardagur er þriðjudagurinn 12. júní Girðingarnefnd hefur náð samningum við eigendur Selsgarðs um að félagið fái beitarlandið við Álftanesveg til úthlutunar. Plássið hefur verið auglýst á Hestafréttum og geta allir sótt um pláss. Sumarbeitin okkar á Álftanesi er uppseld en allir fengu sem sóttu um. Selsgarður er hugsaður sem almenningsstykki. Félagsmenn munu að sjálfsögðu ganga fyrir með beit. Höfum laus pláss fyrir hesta í sumarbeit á Álftanesi, júní – ágúst. Grasgefið og fínt skjól. Staðsett við Álftanesveg. Nánari upplýsingar hjá Jóni/Katrine í s: 894-0321 eða young@simnet.is og soti@internet.is Félagsfundur verður haldin n.k. miðvikudagskvöld 6. júní kl. 20:00 í félagsheimili Sóta. Aðalefni fundarins verður komandi Landsmót og kynning á því en einnig verður sagt frá þeim málum sem stjórnin er að berjast fyrir þessa dagana. Kaffi og kökur og spennandi dagskrá sem lesa má í tölvupósti til allra félaga (með netfang) og einnig hér.
Mætum öll og peppum okkur upp fyrir LM! Kveðja Stjórnin Patrekur á Perlu reið sig upp í þriðja sæti í barnaflokki Gæðingamóti Sörla og Sóta lauk í gær, laugardag 2. júní í brakandi blíðu og voru starfsmenn mótsins grillaðir og brenndir eftir mikla útiveru. Óhætt er að segja að keppendur frá Sóta hafi staðið sig með mikilli prýði og voru úrslitin í barna, unglinga og ungmennaflokki mikil lyftistöng fyrir krakkana enda 9 knapar í úrslitum. Alexandra og Lyfting stóðu sig gríðarlega vel og enduðu í öðru sæti í ungmennaflokki og Patrekur og Perla riðu sig upp í þriðja sæti í barnaflokki. Frábær árangur hjá þeim báðum! Maggi Ármanns mætti sjálfur í úrslit í B-flokki og fór mikinn á yfirferðagamminum Vígari frá Vatni og hlaut mikið klapp frá brekkudómurum. Enginn hestur frá Sóta var í A-úrslitum og var það miður. Einnig hefði verið gaman að sjá tvo hesta frá Sóta í B-úrslitum. Innilega til hamingju allir verðlaunahafar og landsmótsfarar! Og takk Sörli fyrir gott og skemmtilegt mót Þeir sem fara á LM fyrir hönd Sóta eru: (sjá frétt neðar um B flokk, unglinga og ungmenna) A-flokkur Gerpla frá Ólafsbergi - Ketill V. Björnsson Muggur frá Hárlaugsstöðum 2 - Sigurlaug Steingrímsdóttir og Ketill V. Björnsson Barnaflokkur Patrekur Örn Arnarsson á Perlu Margrét Lóa Björnsdóttir á Íslandsblesa Úrslit eru hér Myndir frá úrslitum. teknar af Sveini Jóhannessyni má finna hér: (myndir af verðlaunafhendingu Sóta félaga verða settar á Facebook síðu Sóta) Hestamannafélagið Sóti, æskulýðsnefnd, heldur í fyrsta sinn OPNA fjöruleika! Keppt verður í liðakeppni og þarf hvert félag að senda að lágmarki fjóra liðsmenn (endilega skrá félagið þó ekki náist í fullt lið...!) Keppt verður í: A: Fjörukappreiðar 150 m (boðhlaup í fjörunni) B: Þrautabraut í fjörunni C: Fet-kappreiðar með ævintýraívafi (fyrir þá sem ekki treysta sér í hitt) D: Pollar - búningar - flottasta félagsþemað E: Brokk-boðhlaup (1 hringur) meðal foreldra (gildir í stigasöfnun) á vellinum meðan grillað er. Öllum keppendum er síðan velkomið að prófa sjósund - þeir sem þora! Meira Hér má sjá úrslit gærdagsins en mótið fer fram í brakandi blíðu og eru allir meira og minna orðnir sólbrenndir.
Þeir sem unnu sér í þátttökurétt fyri hönd Sóta á Landsmótinu í gær eru: B-flokkur Punktur frá Varmalæk - eigandi Ketill Björnsson Vígar frá Vatni - eigandi Magnús Ármannsson Unglingar Ólafía Maria Aikman á Ljúf Berglind Birta á Baugi Ungmenni Alexandra Ýr Kolbeins á Lyftingu Innilega til hamingju allir! Í dag, föstudag kemur í ljós hverjir keppa í A flokki og barnaflokki Úrslit hér (Sótahestar rauðletraðir) |
SótiVið Breiðumýri Frír aðgangur að World Feng fyrir skuldlausa félaga. Hafið samband við Elfi elfure@simnet.is.
March 2024
|