Kæru félagar
Firmakepnni Sóta / Minningarmót Ása og Önnu verður að þessu sinni haldin af firmanefnd í samvinnu við mótanefnd. Þar sem fermingar, ferðir og aðrar uppákomur eru á laugardeginum 12. april verður mótið haldið föstudaginn 11. apríl kl 18:00. Skráning í félagsheimilinu sama dag frá 16:45 - 17:30 Keppt verður í eftirtöldum flokkum: Í gerðinu: (ath ekki raðað í sæti, allir fá verðlaunapening) Pollar teymdir - 8 ára og yngri Pollar ríðandi - 8 ára og yngri Barnaflokkur - 9-13 ára Á vellinum: Barnaflokkur - 9-13 ára Unglingaflokkur - 14-17 ára Ungmennaflokkur - 18-21 árs Kvennaflokkur Karlaflokkur Ef lítil þáttaka er í flokkum verður sameinað í flokka. Einnig verður keppt í: (ef næg þátttaka fæst) Unghrossaflokkur - 5 vetra (í vor) og yngri 75 m skeið (tímataka) Engin skráningagjöld og veitingar á vægu verði (hús nr 3). Keppendur fá afhend númer. Riðið verður hefðbundið firmakeppnisprógram þ.e.a.s. hægt tölt og fegurðartölt - allir inná í einu og 5 bestu fara í úrslit. Tónlist, þulur og stemning! Koma svo - allir með og höfum gaman - þetta er mót fyrir alla Firmanefndin
0 Comments
3. vetrarleikar Sóta vera haldnir laugardaginn 5.apríl kv 17:00. Kept verður í "tölti" allir inná í einu sýnt hægt tölt og frjáls ferð. Tveir flokkar verða í boði 17 ára og yngri( barna og unglingaflokkur) og 18 og eldri. Skráning í félagshúsi á milli 15:00 og 16:00. Skráningargjald er kr. 1000. Eftir mótið verður tendrað í grilli og kemur hver með kjöt fyrir sig og sína en meðlæti verður til sölu á vægu verði. Ekki er verra ef fólk verði með kaldan á kantinum og auðvitað góða skapið.
Verðum nú öll með og kveðjum hestadaga með glans. Mótanefnd vill minna þá sem eru með bikara frá síðasta ári að koma þeim til Jöra í síðasta lagi fyrir sunnudaginn 6. apríl. Kveðja Mótanefnd Sóta Kæru Sótafélagar. Nú er komið að Hestadögum sem fara fram 4-5 apríl nk. og hvetum við alla til að taka virkan þátt í þeim.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í skrúðgöngu í miðbæ Reykjavíkur er vinsamlegast bent á að hafa samband við formann okkar. Eins eiga félögin að vera með dagskrá í sínu félagi föstudaginn 4.apríl frá 17-19. Það tókst einstaklega vel hjá Sóta í fyrra og vonumst við til að það verði ekki síðra í ár. Þá er óskað eftir því að félagsmenn hafi opið hús hjá sér og taki vel á móti gestum og gangandi til að kynna félagið. Kær kveðja, Stjórnin Hestaat í Hörpu
Fyrir dyrum standa Hestadagar. Þeir hefjast með formlegum hætti fimmtudaginn 3. apríl kl. 19:00 við Hörpuna. Dagskrá kvöldsins þar verður með þessum hætti: • Kl: 19:00 – Fultrúar félaga á höfuðborgarsvæðinu koma ríðandi að Hörpu með fána sinna félaga og formlega tekið á móti gestum með fordrykk í anddyri Hörpu. Hestadagar settir formlega. • Kl: 20:00 – Hestaat í Hörpu. Hér leiða saman hesta sína Hilmir Snær og hljómsveitirnar Brother Grass og Hundur í óskilum. Boðið verður upp á nýstárlegt, tónrænt uppistand í Norðurljósasal Hörpu. Íslenski hesturinn verður skoðaður frá öllum hliðum og rifjuð upp rysjótt sambúð hans við ótamin náttúruöfl og brokkgenga þjóð. Miðinn á Hestaatið kostar kr. 4.000 á midi.is. LH langar hins vegar að bjóða hestamönnum betri kjör eða miðann á kr. 3.500 ef 10 manns eða fleiri taka sig saman og panta miða sem hópur. Þá verða miðakaupinn að fara í gegnum skrifstofu LH, hilda@landsmot.is. Tilboðið gildir til þriðjudagsins 1. apríl. Er ekki upplagt að skapa stemningu fyrir þessum einstaka viðburði í Hörpunni og skella sér í bæinn á Hestadaga? Formenn góðir – boltinn er hjá ykkur. Bjóðið ykkar félögum góð kjör, búið til stemningu og fögnum hestatengdri menningu í borginni. Vinsamlegast kynnið vel á ykkar vefmiðlum, bæjarfélögum og sendið á póstlista. Í viðhengi er plakat sem má prenta út til kynningar. Hlökkum til að sjá ykkur í Hörpu á fimmtudagskvöldið eftir viku! Stjórn og starfsfólk LH. |
SótiVið Breiðumýri Frír aðgangur að World Feng fyrir skuldlausa félaga. Hafið samband við Elfi elfure@simnet.is.
March 2024
|